Skýr rammi
Við hjálpum hópum að staldra við og skýra hvað raunverulega skiptir máli.
Þar myndast sameiginlegur skilningur sem heldur áfram út ferlið.
Nótera vinnur með stjórnendum og leiðtogateymum þegar skapa þarf skýrleika í aðstæðum sem eru flóknar, óljósar eða stefnumótandi í eðli sínu. Ekki endilega vegna þess að eitthvað sé „að“, heldur vegna þess að mikilvægt er að staldra við, hugsa saman og móta upplýstar ákvarðanir.
Við mætum ekki með fyrirfram tilbúnar lausnir.
Við yfirtökum ekki efnið.
Við segjum fólki ekki hvað það á að gera.
Í staðinn hönnum við ferli þar sem fólk getur lagt sitt af mörkum, sjónarmið fá að mætast og sameiginlegur skilningur verður til.
En reynslan sýnir að oft er það ekki lausnin sem vantar — heldur sameiginlegan skilning á stöðunni, forsendunum og því hvað raunverulega skiptir máli.
Nótera vinnur með stjórnendum og leiðtogateymum þegar:
Við komum ekki inn til að „laga“.
Við komum inn til að skapa skýrleika sem gerir góðar ákvarðanir mögulegar.
Skýrleiki snýst ekki um einföld svör, heldur um:
Þegar skýrleikinn er til staðar, verða næstu skref bæði auðveldari og betri.
Þegar Nótera kemur að borðinu snýst vinnan ekki um að keyra fólk í gegnum fyrirfram skilgreind skref.
Hún snýst um að hanna rými þar sem samtal, greining og ákvarðanataka fá að gerast á markvissan hátt.
Við hjálpum hópum að staldra við og skýra hvað raunverulega skiptir máli.
Þar myndast sameiginlegur skilningur sem heldur áfram út ferlið.
Ferlið er hannað þannig að fólk geti lagt sitt af mörkum.
Sjónarmið mætast, hlustað er og sameiginleg hugsun fær rými.
Niðurstaðan byggir á samtali og sameiginlegri greiningu sem skapar traustan grunn fyrir ákvarðanir og áframhald.